Borgarráð beitir ekki börnum í innheimtu 8. september 2012 07:00 Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna segir vanda við innheimtu gjalda vegna grunnþjónustu við börn vera „enn ein rökin“ fyrir því að gerð sé áætlun um að gera þjónustuna gjaldfrjálsa.Fréttablaðið/Vilhelm „
Telja verður eðlilegra að félagsleg úrræði verði bætt, svo sem með aukinni og sveigjanlegri aðstoð til handa efnalitlum foreldrum,“ segja borgarlögmaður og fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sem mæla gegn breytingum á innheimtureglum svo börn verði ekki af þjónustu vegna vanskila. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi úr Vinstri grænum lagði til að innheimtuaðgerðir borgarinnar yrðu endurskoðaðar að þessu leyti. „Það á ekki að koma niður á börnum hvernig foreldrar þeirra forgangsraða eða eru staddir yfirhöfuð,“ segir Sóley sem fagnar því að borgarráð ákvað þrátt fyrir ráðleggingar fyrrnefndra embættismanna að fá tillögur frá velferðarsviði og skóla- og frístundasviði um breytta verkferla í þessum efnum. Tillögu Sóleyjar var vísað til umsagnar hjá embættismönnunum. „Sú meginregla gildir við veitingu allrar þjónustu Reykjavíkurborgar að borgari missi þjónustu sé ekki greitt,“ undirstrikuðu þau Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður og Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri. „Það er rétt að það er ekki venjan að við séum að hygla einhverjum hópum umfram aðra. En þetta er ekki bara einhver hópur heldur börn og það er hefð fyrir því að við verndum börn,“ segir Sóley sem kveður borgarráð einhuga í að finna lausn á vandanum. Hún ítrekar að ekki sé verið að ræða um að hætta innheimtu eða fella niður skuldir. „Á meðan við erum með gjaldskrár fyrir þessa þjónustu þá innheimtum við að sjálfsögðu það sem við höfum ákveðið og göngum á eftir á þessum skuldum – við beitum bara ekki börnum í þeim innheimtuaðgerðum,“ segir borgarfulltrúinn. gar@frettabladid.is
Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira