Myndir Halldórs Baldurssonar úr héraðsdómi 20. nóvember 2012 10:00 Halldór Baldursson fangaði með blýanti sínum þegar Annþór gaf skýrslu fyrir dómi og svaraði meðal annars spurningum verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar (í miðið).
Dómari bannaði í gær fréttaflutning af réttarhöldum í líkamsárásarmáli Annþórs Kristjáns Karlssonar, Barkar Birgissonar og sjö annarra. Tvímenningarnir huldu venju samkvæmt andlit sín á leið í réttarsalinnTeiknarinn Halldór Baldursson fór á vegum Fréttablaðsins í réttarsal og fangaði með blýanti sínum þegar Annþór og Börkur gáfu skýrslu fyrir dómi.Lögreglan hafði mikinn viðbúnað, þrettán lögregluþjónar voru á staðnum. Sést meðal annars á einni myndinni hvernig lögreglumaður stendur vörð fyrir aftan verjendur.Fjölskipaður dómurinn féllst á kröfu saksóknarans Karls Inga Vilbergssonar um að fréttaflutningur af því sem kæmi fram í réttarhöldunum yrði bannaður þar til öllum skýrslutökum yrði lokið. Það gæti orðið á morgun, en mun tefjast fram á miðvikudag hið minnsta gangi ekki allt að óskum.Ákvörðunin byggir á 11. grein sakamálalaga, þar sem segir að "þótt þinghald sé háð í heyranda hljóði getur dómari bannað að skýrt verði frá því sem gerist þar ef ætla má að frásögn geti leitt til sakarspjalla eða valdið vandamönnum sakbornings, brotaþola eða öðrum sem ekki eru fyrir sökum hafðir þjáningum eða verulegum óþægindum".Það var mat saksóknara og dómara að það gæti spillt fyrir málinu ef sakborningar og vitni gætu lesið fréttir hvert af annars vitnisburði. Ekki er vitað til þess að þessu ákvæði hafi verið beitt áður.Verjendur sakborninga mótmæltu þessari ákvörðun dómsins og töldu að hún væri í ósamræmi við almennar réttarfarsvenjur. Halldór Baldursson dró upp þessa mynd af Berki Birgissyni í vitnastúkunni í gær.x Lögregluþjónar voru við öllu búnir í réttarsalnum.x
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Fleiri fréttir Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Sjá meira