Alexander meiddur á öxl | Tímabilið mögulega búið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2012 19:49 Alexander í leik með Íslandi á EM í Serbíu. Mynd/Vilhelm
Óttast er að Alexander Petersson hafi leikið sinn síðasta leik á tímabilinu vegna axlarmeiðsla sem hann varð fyrir í leik með íslenska landsliðinu á EM í handbolta. Þetta kemur fram í þýskum fjölmiðlum í dag en Alexander er á mála hjá Füchse Berlin, liði Dags Sigurðssonar. Hann sagðist fyrr í dag efins um að Alexander myndi geta spilað með í næstu leikjum. Alexander hefur verið að glíma við eymsli í öxl undanfarið ár og sagði hann í viðtali við Fréttablaðið fyrir EM að það hefði byrjað á HM í Svíþjóð í fyrra. En meiðslin munu hafa orðið mun verri eftir leik Íslands og Slóveníu á EM í Serbíu og gat Alexander ekkert spilað með Íslandi í allri milliriðlakeppninni. „Öxlin hefur ekki verið nógu góð og ég er enn að drepast eftir HM í fyrra. Ég vona að þetta muni ekki há mér á mótinu en það er ómögulegt að segja eins og er. Þetta verður bara að koma í ljós," sagði hann í viðtalinu sem má lesa hér fyrir neðan. Nánari greining á meiðslunum liggur ekki fyrir en framkvæmdarstjóri Füchse Berlin, Bob Hanning, var ekki bjartsýnn. „Í verst falli getur það orðið niðurstaðan að tímabilið sé búið hjá honum," sagði hann við þýska fjölmiðla. Verði það raunin mun hann ekki spila aftur með Füchse Berlin þar sem hann mun ganga til liðs við Rhein-Neckar Löwen í sumar. Engu að síður er þetta mikið áfall fyrir Berlínarliðið sem hefur komið á óvart og situr nú í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.
Handbolti Tengdar fréttir Alexander: Ólafur er enn fyrirmyndin mín Alexander Petersson heldur nú í sitt fyrsta stórmót í handbolta án Ólafs Stefánssonar. Hann verður því aðalskytta liðsins hægra megin þrátt fyrir að glíma við meiðsli í öxl sem hafa hrjáð hann undanfarið ár. 11. janúar 2012 08:00 Mest lesið Ferðaðist nærri 9000 km og borgaði fúlgur fjár fyrir ógildan miða Enski boltinn Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Handbolti Lítur á McGinn sem vin eftir magnaða stund saman á Villa Park Enski boltinn Baðst afsökunar eftir algjöra „heimsku“ Enski boltinn Um þögnina varðandi dómaramál KKÍ: „Þurfum að komast til botns í þessu“ Körfubolti Sunnudagsmessan: Hver hefur komið mest á óvart? Enski boltinn Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Körfubolti Dagskráin í dag: Íslendingar í Evrópu og hafnabolti Sport Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Körfubolti Fleiri fréttir Spenntur að spila aftur í Vestmannaeyjum Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Kári Kristján semur við Þór Akureyri Markahæstur í vetur og nálgast ellefu hundruð mörkin í þýsku deildinni Guðmundur rekinn frá Fredericia Stórleikur Íslendinganna dugði ekki til sigurs Sextán marka tap gegn Dönum staðreynd Selfoss fagnaði fyrsta sigrinum gegn Fram Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Valur sótti nauman sigur norður Tímabilið byrjar vel hjá lærisveinum Guðjóns Vals „Reyndum allt en ekkert gekk upp“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-30 | Sigur FH var aldrei í hættu gegn flötu liði ÍBV Ómar markahæstur og Gísli skoraði sigurmarkið Haukar völtuðu yfir ÍR Orri skilaði þremur úr horninu í miklum markaleik Skylda að klippa vel neglur í handbolta Róbert hættir hjá HSÍ Kastaði stól í Eyjum og fékk þriggja leikja bann Janus sagður á leið til Barcelona Sigvaldi markahæstur í öruggum sigri Kolstad Ljóst hvaða lið mætast í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins Uppþot í Eyjum: „Í kvöld töpuðu íþróttirnar“ Hundfúll út í Refina Arnór framlengir til 2028: „Vil sjá hversu langt við getum farið“ Guðjón Valur fagnaði sigri gegn meisturunum Meistararnir keyrðu yfir nýliðana í seinni hálfleik „Þess vegna unnum við“ „Langt frá því að vera eins og við eigum að vera“ Andrea skoraði sjö í öruggum sigri Sjá meira
Alexander: Ólafur er enn fyrirmyndin mín Alexander Petersson heldur nú í sitt fyrsta stórmót í handbolta án Ólafs Stefánssonar. Hann verður því aðalskytta liðsins hægra megin þrátt fyrir að glíma við meiðsli í öxl sem hafa hrjáð hann undanfarið ár. 11. janúar 2012 08:00