Umboðsmaður skuldara: Ellefu prófmál fyrir héraðsdóm vegna lána 28. júní 2012 13:07
Búið er að velja ellefu prófmál þar sem mun reyna á tuttugu álitaefni sem þarf að fá úr skorið fyrir dómstólum vegna lána. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umboðsmanni skuldara. Þar segir að fimm af þessum málum tengjast lögaðilum og sex einstaklingum. Þau mál sem ekki verða þingfest nú í júní verða þingfest strax að loknu réttarhléi. Þá hefur formlega verið óskað eftir flýtimeðferð hjá Héraðsdómi Reykjavíkur og er vonast til að dóma verði kveðnir upp fyrir áramót. Fjórir lögmenn, þeir Aðalsteinn E. Jónasson hrl. og Stefán A. Svensson hrl. fyrir hönd fjármálafyrirtækja og Dróma og Einar Hugi Bjarnason hrl. og Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl. fyrir hönd umboðsmanns skuldara, völdu þessi ellefu mál útfrá fyrrnefndri samantekt um álitaefni. Einstaklingarnir hafa verið hvattir til að hafa samband við umboðsmann skuldara, sem mun veita þeim aðstoð eftir því sem við á og greiða lögmannskostnað. Lántakendum er í sjálfsvald sett hvaða lögmenn þeir kjósa sér og mun umboðsmaður skuldara ekki skipta sér að því vali. Þó er æskilegt að lögmennirnir hafi réttindi til að flytja mál fyrir Hæstarétti. Ekki mun nást að þingfesta öll þessi mál fyrir réttarhlé, en kapp verður lagt á að það verði gert ekki síðar en strax eftir réttarhlé. Tryggja verður að lögmenn lántaka hafi nægan tíma til að undirbúa mál sinna umbjóðenda. Þegar hefur verið haft samband við Héraðsdóm Reykjavíkur og Dómstólaráð og óskað eftir flýtimeðferð þessara ellefu mála. Einnig verður óskað eftir flýtimeðferð fyrir Hæstarétti, en vonast er til að mál þessi verði tilbúin til málflutnings fyrir Hæstarétti síðla hausts.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Sjá meira