Hægt að klára öll prófmálin á þremur mánuðum 22. ágúst 2012 12:15
Ef allir leggjast á eitt, verður hugsanlega hægt að klára og dæma í öllum prófmálunum vegna gengislánanna í Héraðsdómi á tveimur til þremur mánuðum, segir staðgengill varadómstjóra í Héraðsdómi Reykjavíkur. Eins og fram hefur komið náðist aðeins að þingfesta tvö prófmál vegna gengislána - af ellefu áður en Héraðsdómur Reykjavíkur fór í sumarfrí. En vonast er til að þessu ellefu prófmál dugi til að eyða allri óvissu um hvernig beri að reikna skuldastöðu þeirra sem tóku gengislán á sínum tíma. Umboðsmaður skuldara var bjartsýnn í vor og taldi þá að hægt væri að ljúka málunum í haust, í gær kvaðst hún í samtali við fréttastofu enn vera bjartsýn enda væru allir meðvitaðir um að ljúka þyrfti þessum málum sem allra fyrst. Fréttastofa náði sambandi við Sigríði Ólafsdóttur, staðgengil varadómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur, í morgun en dómstóllinn hefur samþykkt flýtimeðferð á öll prófmálin. Hún sagði vissulega að ýmislegt gæti haft áhrif á hversu hratt tækist að afgreiða málin fyrir dómstólnum, hins vegar sagði hún að ef allir legðust á eitt þá væri fræðilegur möguleiki að vinna málin og dæma í þeim á tveimur til þremur mánuðum. Gangi það eftir verður komin niðurstaða í þessi mál fyrir áramót en þá eiga prófmálin væntanlega eftir að fara fyrir Hæstarétt. Prófmálin tvö sem eru komin inn í dómskerfið beinast annars vegar að Lýsingu og hins vegar Arion banka. Þeim er meðal annars ætlað að svara því álitaefni frá hvaða tíma fólk á að greiða seðlabankavexti, hvort það er til dæmis frá því að lánin voru dæmd ólögleg í júní 2010 eða þegar Árna Páls lögin voru sett í desember sama ár.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira