Innlent

Rafhjól eru engin leiktæki

BBI skrifar
Rafhjólin eru misjöfn að stærð og gerð. Sum minna á litlar vespur en önnur eru að mestu leyti eins og venjuleg reiðhjól.
Rafhjólin eru misjöfn að stærð og gerð. Sum minna á litlar vespur en önnur eru að mestu leyti eins og venjuleg reiðhjól. Mynd/Ernir
Notkun rafhjóla hefur aukist mjög á landinu síðustu ár. Akstur þeirra er að mörgu leyti mjög frábrugðinn hefðbundnum reiðhjólum. Lögreglu hafa reglulega borist tilkynningar um rafhjól sem ekið er ógætilega, jafvel af börnum, hjálmlausum og stundum með mörgum farþegum. Því hefur Umferðarstofa gefið út leiðbeiningar sem eigendur rafhjóla ættu að hafa bakvið eyrað.

Umferðarstofa mælir ekki með að börn yngri en 13 ára séu á rafdrifnum hjólum. Þá er óheimilt er að reiða farþega á hjólum sem þessum. Nauðsynlegt er að ökumaður sé með hjálm og æskilegt að nota auka hlífðarbúnað.

Flest eru rafhjól hönnuð fyrir fullorðna og teljast ekki til leiktækja.

Mynd/Umferðarstofa
Hjólunum má ekki aka á akbraut, heimilt er að vera á gangstéttum en nauðsynlegt að sýna gangandi vegfarendum tillitssemi. Rétt er að hafa í huga að hjólin eru gjarna þung og komast á töluverða ferð án þess að ökumaður hafi mikið fyrir því. Þar af leiðir er hætta á að ökumenn missi stjórnar á hjólinu og meiri skaði ef óhapp verður.

Á myndinni hér til hliðar má fara yfir ráðleggingar Umferðarstofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×