Fótbolti

10 fallegustu mörk ársins að mati tvgolo.com

Stefán Árni Pálsson skrifar
Vefsíðan tvgolo.com hefur valið tíu fallegustu mörk ársins 2012 og birtir hér myndskeið af þessum stórkostlegu mörkum.

Árið var frábært knattspyrnuár og mörg falleg mörk litu dagsins ljós. Markið sem Zlatan Ibrahimovic skoraði fyrir Svía nú alls ekki fyrir löngu var stórkostlegt og fáir eiga eftir að gleyma því.

Philippe Mexès, leikmaður AC Milan, gerði einnig ótrúlegt mark í Meistaradeild Evrópu seint á árinu og var það ekki síðra.

Hér að ofan má sjá myndband af mörkunum tíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×