Tíu gestir í Kvennaathvarfinu um jólin Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. desember 2012 18:41 Mynd úr safni.
Tíu gestir hafa dvalið í Kvennaathvarfinu um jólahátíðina. Framkvæmdastýran segir ástandið á mörgum heimilum hafa versnað fyrir jólin vegna álagsins en lögregla vistaði fjóra í fangageymslu aðfaranótt jóladags vegna heimilisofbeldis. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð fjórum sinnum út aðfaranótt jóladags vegna ofbeldis og ölvunar á heimilum. Í öllum tilvikunum voru einstaklingar handteknir og vistaðir í fangageymslu til að tryggja ástandið á heimilunum. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, segir fréttirnar ekki koma sér á óvart. „Þetta er eitthvað sem við höfum séð og eitthvað sem við höfum heyrt af bæði fyrir jólin og eftir þau og auðvitað gestafjöldinn í athvarfinu segir sína sögu yfir jólin," segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, famkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Um jólahátíðina hafi tíu gestir verið í Kvennaathvarfinu, fimm konur og fimm börn. Hún segir marga hafa haft samband í desember. „Það er allur gangur á því hvernig desembermánuður og jólin eru í Kvennaathvarfinu. Stundum er það tiltölulega rólegur tími og stundum er það einmitt mikill annamánuður. Hann var það þetta árið. Mikið annríki hjá okkur," segir hún. „Ég held að konur séu beittar ofbeldi á heimilum sínum allt árið um kring. Þessar gríðarlegu væntingar til þess að allt verði gott og dásamlegt á jólunum standast því miður ekki," segir Sigþrúður. Hún segir desember oft vera erfiðan mánuð fyrir konur sem búa við heimilisofbeldi. „Við heyrðum í heilmörgum konum fyrir jólin sem höfðu áhyggjur af svona komandi dögum. Ástandið á heimilinu var að versna og álagið mjög mikið," segir hún. „Streitan var að aukast og álagið á heimilinu var meira. Streita er auðvitað eitt af því sem að ýtir undir ofbeldi."
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira