Innlent

Klemmdi fingur í Selfossi

Að morgni fimmtudags í síðustu viku var tilkynnt um vinnuslys um borð í flutningaskipinu Selfossi þar sem skipið lá við bryggju í Vestmannaeyjahöfn. Einn af skipverjunum hafði klemmt fingur á milli flutningagáms og spredda þannig að hann fékk sár á fingurinn og þurfti að leita á slysadeild.

Í sömu viku varð umferðferðaróhapp við afgreiðslu Herjólfs þegar langferðabíll ók undir göngubrú Herjólfs með þeim afleiðingum að þak bifreiðarinnar rakst undir brúna og fletti ofan af þakinu. Engin meiðsl urðu á fólki en þó nokkuð tjón varð á bifreiðinni. Göngubrúin skemmdist ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×