Íbúar telja breitt yfir neikvæð áhrif spítala 6. september 2012 05:15 landspítali íbúasamtökin segja að umferð um Miklubraut, austan Bústaðavegar/Snorrabrautar, muni aukast um tæplega 50% eftir 1. áfanga spítalans. fréttablaðið/samsett mynd
Íbúasamtök 3. hverfis, sem nær til Hlíða, Holta og Norðurmýri, segja umhverfismat á deiliskipulagstillögu um nýjan Landspítala við Hringbraut vera meingallað. Reynt sé að breiða yfir neikvæð áhrif aukinnar umferðar. Samtökin sendu inn athugasemdir vegna tillögunnar, en frestur til þess rann út í gær. Þau benda á að í umhverfismatinu sé talið að áhrif svifryksmengunar vegna aukinnar umferðar séu óveruleg. Sú niðurstaða fáist með því að láta útreikninga vegna svifryksmengunar eingöngu ná til útblásturs bifreiða en ekki vegslits, sem þó sé um 85 til 90% af uppsprettu svifryksmengunar. Þetta sé tekið fram í matinu. Samtökin segja skipulagsyfirvöld ekki geta samþykkt tillöguna „þar sem skipulega er litið fram hjá uppsprettu mengunar vegna hennar og reynt er að breiða yfir neikvæð áhrif aukinnar umferðar,“ eins og segir í athugasemdunum. Þá segja þau að staðallinn sem stuðst sé við í hljóðvistargreiningu vegna umhverfishávaða geri hvorki ráð fyrir að hluti bifreiða aki um á nagladekkjum né þeirri staðreynd að blautt geti verið í veðri. Vitað sé að þetta auki á hávaða. Þau segja ekki hægt að samþykkja tillögu sem notist við gögn sem byggi ekki á raunverulegum aðstæðum. Íbúasamtökin hafa áhyggjur af því að byggingin muni stórauka umferð um nærliggjandi íbúahverfi, enda sé ljóst að núverandi stofnbrautir valdi ekki aukinni umferð. Endurskoða þurfi staðsetningu spítalans, eða ráðast í gerð stokks austur fyrir Lönguhlíð og Öskjuhlíðarganga. Bent er á að byggingarmagn hafi aukist gríðarlega frá því að staðsetningin var samþykkt, úr 120 þúsund fermetrum í 290 þúsund fermetra. Þá hafi ekkert tillit verið tekið til breyttra áherslna í nýju aðalskipulagi. Íbúasamtökin telja að forsendur staðsetningarinnar „hafi miðað við skipulag með hringakstur í borginni, með Holtsgöngum, Hlíðarfæti og göngum undir Öskjuhlíð og Kringlumýrarbraut.“ Af þessu standi aðeins spítalinn eftir.kolbeinn@frettabladid.is
Tengdar fréttir Skipti um skoðun Steinunn Valdís Óskarsdóttir var áhrifamaður í borgarstjórn Reykjavíkur þegar staðsetningu sjúkrahússins var fagnað, meðal annars með vísan í nálægð við Háskóla Íslands og eflingu miðborgarinnar. Hún hefur nú upplýst að hún telji forsendur breyttar. 6. september 2012 05:30 Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Sjá meira
Skipti um skoðun Steinunn Valdís Óskarsdóttir var áhrifamaður í borgarstjórn Reykjavíkur þegar staðsetningu sjúkrahússins var fagnað, meðal annars með vísan í nálægð við Háskóla Íslands og eflingu miðborgarinnar. Hún hefur nú upplýst að hún telji forsendur breyttar. 6. september 2012 05:30