Viðræðurnar færast yfir á annað stig thorgils@frettabladid.is skrifar 19. desember 2012 07:45 ERfiðu kaflarnir taka við Aðildarviðræður Íslands og ESB fara nú inn á ný svið með þeirri ákvörðun samningsaðila að taka sex nýja kafla til umræðu. Þeir snerta mörg erfið málefni, líkt og umhverfismál og peningamál.Fréttablaðið/Þorgils
Þrátt fyrir óvissu á stjórnmálasviðinu eru aðildarviðræður Íslands og ESB komnar á nýtt stig þar sem viðræður eru hafnar um kafla sem standa utan EES-samningsins og meira ber á milli aðila. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, sögðu að lokinni fimmtu ríkjaráðstefnu Íslands og ESB í Brussel í gær að um væri að ræða ákveðinn áfanga á þessari vegferð. Eftir ríkjaráðstefnuna var staðfest að viðræður hæfust nú um sex samningskafla og að bráðabirgðasamkomulag hefði náðst um einn kafla. Þannig hafa viðræður hafist um 27 kafla af 33 og samkomulag náðst um ellefu þeirra. Á meðal þeirra sem bættust við að þessu sinni eru kaflarnir um umhverfismál, byggðastefnu og efnahags- og peningamál. Füle sagði á blaðamannafundi að gangurinn í viðræðunum væri góður, en nokkrar áskoranir fælust í mörgum þeirra kafla sem nú kæmu til umræðu. „Ég er hins vegar viss um að við getum fundið lausnir sem báðir aðilar geta fallist á.“ Spurður um þá stöðu að ný stjórn gæti tekið við eftir alþingiskosningar og Ísland myndi jafnvel draga umsóknina til baka eða setja í bið sagðist Füle ekki vera í aðstöðu til að velta þeim hlutum fyrir sér, en sagði ekkert einsdæmi að stjórnarskipti yrðu í miðju aðildarferli og það þyrfti ekki í sjálfu sér að hafa áhrif á gang viðræðnanna. „En mitt mat er að það sé Íslandi í hag að ljúka viðræðunum með samningi og ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fá tækifæri til að sýna í verki að okkur er alvara með að við getum tekið tillit til sérstöðu Íslands án þess að ganga gegn löggjöf ESB.“ Össur sagði að mikilvægt skref hefði verið stigið og erfiðir kaflar hefðu verið teknir fyrir. „Við erum farin að semja um þunga kafla sem gætu sumir hverjir jafnvel orðið enn erfiðari en þeir sem hingað til hafa verið taldir erfiðastir, til dæmis sjávarútvegur og landbúnaður.“ Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins innan ESB vonast menn þar til þess að viðræður verði hafnar um alla kafla fyrir utan sjávarútveg og landbúnað um mitt næsta ár. Spurður um það og hvort stefnt væri að því að taka sem flesta kafla fyrir áður en kosið yrði til Alþingis sagði Össur að hann setti sér engin tímamörk í þessum efnum. „Við vinnum þetta á sama skriði og verið hefur. Nú er komið að því að taka utan um þá kafla sem búið er að opna fyrir, sverfa niður vandkvæði og vinna að því að ná samkomulagi um fleiri kafla. Mitt markmið er að búa til sem bestan samning, sama hversu langan tíma það tekur.“
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira