Lagabreyting ógnar starfsendurhæfingu 19. desember 2012 06:15 endurhæfing Framkvæmdastjóri Janusar telur hin nýju lög geta orðið til þess að þeir sem þurfa mest á endurhæfingu að halda missi þjónustuna. nordicphotos/getty „
Lögin geta valdið því að þeir sem eru veikastir og þurfa lengst úrræði gætu orðið af þessari þjónustu sem allir eiga þó rétt á,“ segir Kristín Siggeirsdóttir, framkvæmdastjóri Janusar endurhæfingar. „Vegna mikils skorts á samfelldri og langvinnri endurhæfingu erum við að horfa upp á það að einstaklingar með þung geðræn vandamál virðast lenda á milli skips og bryggju.“ Mikil óvissa ríkir nú um framtíð starfsendurhæfingarstöðva í landinu. Breyting á lögum um málaflokkinn síðan í sumar hefur í för með sér að velferðarráðuneyti hættir að gera þjónustusamninga við starfsendurhæfingarstöðvar á landinu og öll ábyrgð á málaflokknum færist yfir til VIRK starfsendurhæfingarsjóðs. Uggur er meðal starfsfólks starfsendurhæfingarstöðva víðs vegar um landið vegna þessa. Lögin gilda um starfsendurhæfingarsjóði, framlög til þeirra og rétt einstaklinga til atvinnutengdrar starfsendurhæfingar á vegum slíkra sjóða. Við gildistöku laganna hætti ríkið að taka þátt í og bera ábyrgð á starfsendurhæfingu á Íslandi og flutti ábyrgðina alfarið yfir til aðila vinnumarkaðarins. Að mati Kristínar gæti þetta komið í veg fyrir að allir þeir einstaklingar sem eiga rétt á og eru með flókin vandamál sem þarfnast langtímastarfsendurhæfingar fái notið þjónustu Janusar endurhæfingar. Með breytingum á fjárveitingaferli til Janusar sé alls óvíst hvort starfsemin geti verið með óbreyttu sniði þar á næsta ári. Kristín hefur fundað með Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra um málið og er vongóð um að farsæl lending náist á næstunni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa starfsmenn annarra starfsendurhæfingarstöðva á landinu einnig gagnrýnt lagabreytingarnar og farið fram á útskýringar frá ráðuneytinu.sunna@frettabladid.is
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira