Meint svik í auglýsingu ASÍ mjög undorpin túlkun Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. desember 2012 19:00
Ríkisstjórnin lofaði að afgreiða rammaáætlun á haustþingi fyrir meira en ári og að fylgja viðurkenndu ferli. Þá má deila um hvort ríkisstjórnin hafi vanefnt loforð um fjárfestingu. Úttekt fréttastofunnar leiðir hins vegar í ljós að önnur atriði í auglýsingu ASÍ um svikin loforð ríkisstjórnarinnar eru háð túlkun. Ein stærsta pólitíska frétt síðustu viku var auglýsing Alþýðusambands Íslands um meint svik ríkisstjórnarinnar um aðgerðir á vinnumarkaði. Í kjölfarið sagði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sig úr Samfylkingunni voru þau tíðindi túlkuð sem áfall fyrir Samfylkinguna. En hvað er satt og rétt? Og hefur ríkisstjórnin svikið loforð? Haft skal í huga að atvinnuleysi er undir 5 prósentum, umtalsvert minna en víðast hvar í Evrópu. Þá er Hagvöxtur á ársgrundvelli um 2,7 prósent, sem er mun betra en í mörgum ríkjum Evrópu sem við berum okkur saman við. Hagtölur benda til þess að staðan sé býsna góð hér og því samhengi má rifja upp ummæli Lars Christiansen, greinanda hjá Danske bank. Ríkisstjórnin hefur svarað auglýsingu ASÍ þar sem öllum atriðum hennar er vísað á bug. Sjálfstæð athugun fréttastofu leiddi í ljós að það er hæpið eða í besta falli umdeilt hvort innistæða sé fyrir svikum í fyrstu sex liðum auglýsingarinnar og klárlega undirorpið túlkun, en þá þarf að bera auglýsinguna saman yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí 2011. Ríkisstjórnin er gagnrýnd í auglýsingu ASÍ fyrir að hafa ekki styrkt gengi krónu en íslenska krónan er einn óstöðugasti gjaldmiðill í veröldinni og er peningastefnan í höndum Seðlabankans og sjálfstæði Seðlabankans er tryggt með lögum. Þá eru þarna atriði sem ekki var orðrétt að finna í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga og því ómögulegt fyrir hana að vanefna. Í sjöunda lið er ríkisstjórnin sökuð um vanefndir þar sem rammaáætlun hafi ekki verið afgreidd i í samræmi við tillögu sérfræðinganefndar. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá maí í fyrra segir að rammaáætlun verði lögð fram á næstu vikum og fari í viðeigandi ferli. „Stjórnvöld stefn(i) að því að hún verði afgreidd á næsta haustþingi." Um er að ræða haustið 2011 og því um árs seinkun að ræða. Einnig er vert að staldra við orðalag, „viðeigandi ferli" en þýðir væntanlega viðurkennt verklag við rammaáætlun. Vakið hefur harðar harðar deilur að virkjunarkostir í neðri hluta Þjórsár hafi verið settir í biðflokk, þvert á mat sérfræðinga. Það má því segja með fullri sanngirni að gagnrýni forystu ASÍ á þetta sé réttmæt. „Það liggur fyrir staðfest af hálfu yfirvalda sem framkvæma þær rannsóknir (á áhrifum virkjunar í neðri hluta Þjórsár innsk.blm) að þær hafi farið fram. Þær upplýsingar liggja fyrir og þær hafa ekki breytt afstöðu verkefnastjórnarinnar að ráðast í þessar virkjanir," segir Gylfi Arnbjörnsson. Þannig að það er pólitísk ákvörðun að setja neðri Þjórsá í biðflokk? „Það er það sem við höfum áhyggjur af. Það er verið að víkja faglegum rökum til hliðar og taka pólitísku rökin á borðið og segja: Af því bara." Í áttunda lið auglýsingu ASÍ er fullyrt að loforð um róttækar aðgerðir í atvinnumálum og auknar fjárfestingar hafi verið svikið. „Það eru atriði sem snúa að því að skapa forsendur fyrir fjárfestingu og ég held að það sé nokkurn veginn óumdeilt að stjórnvöld hafa frekar verið í því að leggja álögur á atvinnulífið sem hamla fjárfestingum en að stjórnvöld hafi verið að skapa forsendur fyrir þeim," segir Gylfi. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira