Segist hafa fallið út úr Gamla bíói og brotið sköflunginn 7. september 2012 10:46 Fallið nægði til þess að Hildur braut á sér sköflunginn. Mynd af hurðinni sem hún segist hafa fallið út úr. „
Þetta var frekar óskemmtilegt," lýsir Margrét Hildur Guðmundsdóttir í þættinum Í bítið á Bylgjunni í morgun en hún segist hafa fallið niður á götu á tónleikum Jet Black Joe í Gamla bíó aðfaranótt laugardags, þegar hún ætlaði ásamt vinkonum sínum út að fá sér ferskt loft. Margrét Hildur segist hafa verið baksviðs ásamt öðru fólki þegar þær vinkonurnar ætluðu út. Þær sáu eldvarnarhurð sem Margrét Hildur opnaði. Hún segist hinsvegar ekki hafa horft fram fyrir sig þegar hún opnaði hurðina. Hún steig því út fyrir og þá mætti henni ekkert nema fallið. Hún féll niður hátt í tvo metra og hafnaði á steyptu bílastæði fyrir neðan. „Þegar ég lenti velti ég því bara fyrir mér hvort ég væri hálsbrotin eða yfir höfuð enn á lífi," lýsir Margrét Hildur í viðtali við Bítið en hún var ringluð eftir fallið. Hún fann mikið til í líkamanum að eigin sögn en í stað þess að hringja í sjúkrabíl hringdi hún í leigubíl. „Mér fannst þetta eitthvað svo hallærislegt að ég vildi ekki vera að draga athyglina að mér," sagði Margrét Hildur sem sagði að sú undarlega hugsun hefði sótt að henni að enginn mætti sjá hversu klaufalegt þetta hefði verið hjá henni. Vinkonur hennar hjálpuðu henni og kölluðu á leigubíl. Margrét Hildur vonaðist til þess að geta sofið þetta af sér, en annað kom í ljós. Daginn eftir fór hún upp á spítala. Þar kom í ljós að hún hafði brotið á sér sköflunginn. Hún þarf því að vera í gifsi næstu 6 vikurnar, en ætti að ná sér að fullu eftir þrjá til fjóra mánuði ef allt gengur eftir.Enginn veit neitt Signý Eiríksdóttir, verkefnastjóri Leikhúsmógulsins, sem rekur húsið, segir í samtali við Vísi að lögreglan hafi komið á vettvang og tekið út aðstæður vegna málsins. Hún segist þó ekki kannast við neitt, „það veit enginn neitt um þetta mál, mér finnst þetta mjög undarlegt." Signý segir að gestir eigi ekki að vera þar sem hljómsveitin var þetta kvöld og hún heldur því fram að enginn kannist við að Margrét Hildur hafi verið á svæðinu. „Mér finnst þetta mjög undarlegt. Það kannast enginn við þetta, það var enginn sem bauð henni þangað, hljómsveitin bauð henni ekki einu sinni," segir Signý sem áttaði sig illa á málin og fékk litlar upplýsingar frá lögreglunni. Hún áréttar þó að þeim þyki málið afar leitt. Vinnueftirlitið rannsakar málið Umsjónarmaður Reykjavíkurumdæmis Vinnueftirlitsins, Steinar Harðarson, segir Vinnueftirlitið vera með málið á sínu borði. Fulltrúar Vinnueftirlitsins áttu þó eftir að fara á vettvang og taka út aðstæður, búist var við að það yrði gert í dag. „En það er alveg ljóst að það sé forkastanlegt ef að hurð, sem ekkert er að baki nema fall, sé ólæst," segir Steinar og talar þá almennt um aðbúnað í kringum eldvarnarhurðir. Hægt er að lesa viðtalið við Margréti Hildi hér fyrir ofan.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira