Jens sagður beita konur ofbeldi með kerfisbundnum hætti 18. desember 2012 19:01 Jens Hjartarson, þegar hann var leiddur út úr Héraðsdómi eftir að hafa verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að hafa beitt átján ára stúlku hrottalegu ofbeldi.
Mál manns, sem grunaður er um að hafa misþyrmt 18 ára stúlku hrottalega fyrir nokkrum dögum, er einstakt að sögn saksóknara hjá lögreglunni. Ekki sé sé vitað um jafn kerfisbundið ofbeldi gegn jafn mörgum konum og birtist í hans málsgögnum. Samkvæmt sakavottorði hefur Jens Hjartarson hlotið 15 sinnum dóm frá árinu 2002. Þyngsti dómurinn féll árið 2003. Þá hlaut hann 7 ára fangelsi fyrir morðtilraun og ítrekaðar sérlega hættulegar líkamsárásir. Meðal annars skar hann einn mann á háls og stakk annan í kviðinn. Eftir að ákærði var fluttur í fangaklefa beit hann lögregluþjón. Bara í ár er rökstuddur grunur um að hann hafi gerst sekur um fjölmörg hegningarlagabrot, fjögur ofbeldisbrot, nauðgun, eignaspjöll og brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Í úrskurði Hæstaréttar kemur fram að það sé mat lögreglu að maðurinn hafi einbeittan brotavilja og að undanförnu hafi ekkert lát verið á brotum hans sem séu ósvífin og tengist oft ofbeldi gegn ungum konum. En hvers vegna krafðist lögregla ekki gæsluvarðhalds fyrr? "Þessi mál hafa ekki öll komið til okkar með kærum fyrr en í desember. Við þurfum að eiga traust og trúnað þolandanna sem eiga erfiða göngu fyrir höndum við að reyna að komast út úr þessu ástandi og leita sér hjálpar," segir Jón H. B. Snorrason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og saksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að mál sem þessi séu mjög erfið í meðförum enda sé þolendur og á tíðum mjög tilfinningalega bundnir gerendunum, vilji ekki kæra og telji sig eiga sök á brotunum auk þess sumir séu auk þess of hræddir við að kæra. Brotaferill þessa manns virðist einstakur af gögnum málsins að dæma. Maður hafi ekki áður verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir síendurtekin brot sem falla undir skilgreininguna heimilisofbeldi. "Þetta mál er sérstakt að því leytinu til, því við höfum sem betur fer fá dæmi um einstakling sem beitir svona kerfisbundnu ofbeldi, að því er virðist á málunum, gagnvart mörgum þolendum. Það er einstakt." Hann segir að oft sé þó krafist gæsluvarðhalds vegna heimilisofbeldis enda sé oft um alvarlegar líkamsárásir að ræða. „Ég hugsa að um það bil helmingur manndrápsmála undanfarinn áratug eigi sér undanfara í heimilisofbeldi sem svo endar með manndrápi," segir Jón H. B. Snorrason. Í úrskurði Hæstaréttar segir meðal annars: „Með vísan til brotaferils kærða á undanförnum vikum og mánuðum sé það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu fyrir því að hann muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna og því nauðsynlegt að kærði sæti gæsluvarðhaldi á meðan mál hans sæti rannsókn lögreglu og eftir atvikum dómsmeðferð.“ Þá segir að brot kærða í eðli sínu svo svívirðileg að almannhagsmunir krefjist þess að hann sæti gæsluvarðhaldi. Það myndi valda mikilli hneykslun og særa réttarvitund almennings gengi kærði frjáls ferða sinna. Jens hafi ítrekað orðið uppvís að alvarlegum ofbeldisbrotum og verði að teljast mjög hættulegur umhverfi sínu og því afar brýnt að honum verði gert að sæta gæsluvarðhaldi með tillit til almannahagsmuna.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira