Útveguðu mjólkurpela og drykki - farþegar halda áfram síðdegis 16. ágúst 2012 16:02 Neyðarvarnateymi Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu opnaði fjöldahjálparstöð í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í morgun. Henni var lokað um hádegið eftir að ákveðið var að farþegar Aeroflot flugvélarinnar yrðu áfram á Keflavíkurflugvelli og færu af landinu í kvöld. Þess í stað var hlúð að farþegum og áhöfn í flugskýli á Keflavíkurflugvelli.
Um tuttugu fjöldahjálparstjórar og sjálfboðaliðar Rauða krossins á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu hafa síðustu klukkustundirnar hlúð að 238 farþegum og 17 manna áhöfn flugvélar frá Aeroflot í flugskýli á öryggissvæði á Keflavíkurflugvelli samkvæmt tilkynningu frá Rauða krossinum. Rauði krossinn dreifði teppum til fólksins og mat, vatni, te, kaffi og ávöxtum auk þess sem barnafjölskyldum voru útvegaðir mjólkurpelar og aðrar nauðsynjar. Farþegarnir voru allir án handfarangurs þangað til nú um þrjúleytið og því gengu sjálfboðaliðar á milli fólks, könnuðu ástand þess og útveguðu fólki nauðsynleg lyf sem það gat ekki verið án. Túlkar úr hópi sjálfboðaliða Rauða krossins hafa aðstoðað við samskipti og upplýsingagjöf auk þess sem túlkur frá Rússneska sendiráðinu er á staðnum og fulltrúar frá Bandaríska sendiráðinu. Flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli í morgun vegna sprengjuhótunar. Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði í morgun þar sem til stóð að taka á móti fólkinu áður en því yrði útveguð gisting á Íslandi. Horfið var frá því eftir að Aeroflot ákvað að senda aðra flugvél eftir fólkinu og var fjöldahjálparstöðinni þar lokað um hádegisbil. Guðmundur Þórir Ingólfsson, verkefnisstjóri neyðarvarna Rauða krossins á Suðurnesjum, sagði nú upp úr þrjú að fólkið væri búið að fá handfarangur sinn og væri byrjað að týnast upp í rútur sem flytja það aftur í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áætlað er að önnur flugvél Aeroflot komi til Keflavíkur upp úr fimm síðdegis og er brottför áætluð rúmlega sex. Guðmundur lofaði sérstaklega gott samstarf allra sem komu að aðstoð við farþegana, starfsfólk Isavia, Flugleiða og sjálfboðaliða Rauða krossins.
Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira