Innlent

Brimborg átti ekki rétt á að skila lóðinni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Egill Jóhannsson er forstjóri Brimborgar.
Egill Jóhannsson er forstjóri Brimborgar.
Hæstiréttur telur að Brimborg hafi ekki átt rétt á því að skila lóð sem fyrirtækið hafði fengið afhenta frá Reykjavíkurborg gegn endurgreiðslu lóðagjalda. Dómur Hæstaréttar um þetta var kveðinn upp í dag. Brimborg sótti 25. janúar 2006 um 33 þúsund fermetra lóð við Lækjarmel á Esjumelum í Reykjavík. Á fundi borgarráðs áfrýjanda 16. febrúar 2006 var samþykkt að úthluta stefnda lóðinni og honum tilkynnt það bréflega samdægurs. Þar var tekið fram að lágmarksgatnagerðargjald væri 113 milljónir.

Brimborg sendi Reykjavíkurborg bréf 9. október 2008 um að hann skilaði umræddri lóð og fór fram á endurgreiðslu gatnagerðargjalds, en framkvæmdir á lóðinni voru ekki hafnar. Þetta erindi ítrekaði hann með bréfi 12. nóvember sama ár. Á fundi borgarráðs 20. nóvember 2008 var samþykkt tillaga borgarstjóra um lóðamál. Þar var meðal annars kveðið á um að ekki yrði heimilt að skila lóðum sem úthlutað hafi verið fyrir atvinnuhúsnæði nema sérstök heimild borgarráðs kæmi til hverju sinni.

Brimborg sætti sig ekki við þá niðurstöðu og stefndi borginni. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi að Brimborg gæti skilað lóðinni en Hæstiréttur sneri þeirri niðurstöðu við í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×