Innlent

Grunaður um að hafa haldið konu nauðugri og reynt að nauðga henni

Hæstiréttur Íslands staðfesti gæsluvarðhald yfir karlmanni sem er meðal annars grunaður um að hafa haldi konu nauðugri í fjórar klukkustundir og gert tilraun til þess að nauðga henni.

Maðurinn er að auki ákærður fyrir þjófnaðarbrot, tilraun til þjófnaðar, nytjastuld og fjársvik. Þau brot hefur maðurinn að mestu játað. Maðurinn á samfelldan brotaferil frá 15 ára aldri og er í mikilli vímuefnaneyslu sem hann fjármagnar að hluta með afbrotum samkvæmt dómsorði.

Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi til 10, júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×