Innlent

Stöðvuðu kannabisræktun - fundu karlmann inn í fataskáp

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í umdæminu í gær og fyrradag og lagði hald á nokkra tugi kannabisplantna.

Á öðrum staðnum var um að ræða ræktun í iðnaðarhúsnæði en í hinu tilvikinu var kannabisræktunin í íbúð í fjölbýlishúsi. Þar kom kona til dyra þegar lögreglan bankaði upp á en börn búa einnig á heimilinu.

Í hjónaherbergi íbúðarinnar hafði karlmaður falið sig inni í fataskáp en sá sagðist hafa verið staddur í íbúðinni fyrir tilviljun og væri kannabisræktunin honum með öllu óviðkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×