Viðskipti innlent

Herðing haftanna er algjörlega ónauðsynleg aðgerð

„Þetta mun rýra traust manna á Íslandi og virðist vera, að mér sýnist, algjörlega ónauðsynleg aðgerð," segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, um breytingar á gjaldeyrishöftum. Páll var meðal þeirra sem funduðu með efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis um breytingar á lögum um gjaldeyrishöft í gærkvöldi. Til stóð að samþykkja lögin á Alþingi í gærkvöld, til að halda stöðugleika á gjaldeyrismarkaði og hindra gengisfall krónunnar.

Páll segir viðbrögð löggjafans vera allt of hörð og þau feli í sér töluverða orðsporsáhættu. „Mér hefði þótt nær ef menn ætluðu að fara í þetta á annað borð að miða við að setja ekki skorður á þegar útgefin bréf sem eru á markaði, heldur á nýja verðbréfaflokka, óútgefna. Ég held að þetta sé mjög hættuleg aðgerð."

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var einnig á fundi nefndarinnar í gærkvöldi. Hann segir lagasetninguna enn eitt skrefið í þeirri sneypuför sem gjaldeyrishöftin séu. „Þetta er líka ákveðin einkunn yfir því tali sem hefur verið í gangi af hálfu ríkisstjórnar og Seðlabankans að sannfæra fólk um að hlutirnir séu að lagast. Síðan kemur allt í einu upp neyðarástand sem verður til þess að þarf að herða gjaldeyrishöftin, og það eru skilaboð um að vandinn sé ekkert að minnka heldur vaxa. Trúverðugleiki ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans rýrnar enn og ekki var úr háum söðli að detta fyrir," segir Vilhjálmur.

Hann segir einnig að breytingarnar setji vinnu allra slitastjórna í uppnám. Ef Seðlabankinn hafi haft áhyggjur af peningum sem þar séu hafi átt að ræða þau mál við slitastjórnirnar og kanna aðrar leiðir en lagasetningu.

Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar Glitnis vildi ekki tjá sig um frumvarpið í gærkvöldi. Ekki náðist í fulltrúa annarra slitastjórna. - þeb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×