Innlent

Greiða 500 krónur til að taka þátt í forvali

Mynd/Daníel Rúnarsson
Skráðir félagar í Vinstri grænum verða að greiða 500 króna lágmarksgjald vilji þeir taka þátt í forvali flokksins.

Forval í Reykjavíkurkjördæmunum verður haldið laugardaginn 24. nóvember næstkomandi. Fólk verður að hafa skráð sig í flokkinn tíu dögum áður en valið fer fram.

„Þeir sem hafa kosningarétt í prófkjörinu eru þeir sem hafa greitt félagsgjöld," segir Auður Lilja Erlingsdóttir, framkvæmdastýra Vinstri grænna. „Félagsgjöld eru 3.500 krónur en þó breytileg milli staða."

„Þeir sem ekki hafa greitt félagsgjöldin geta greitt 500 króna lágmarksgjald til að taka þátt."

Eins og fram hefur komið verða tvær leiði í boði við val á framboðsliðsta Vinstri grænna vegna þingkosninga á næsta ári. Annars vegar forval eins og fram hefur komið og hins vegar uppstilling en sú leið verður farin í Suðurkjördæmi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×