Innlent

Eimskip formlega skráð á aðalmarkað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Páll Harðarson og Gylfi Sigfússon undirrita samningana.
Páll Harðarson og Gylfi Sigfússon undirrita samningana. Mynd/ MH
Eimskipafélag Íslands hf. var formlega skráð á aðalmarkað Nasdaq OMX á Íslandi í dag. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, og Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips, undirrituðu samninga um skráninguna á tíunda tímanum. Eimskip er þriðja félagið sem skráð er á markað á Íslandi eftir hrun en áður höfðu Hagar og Reginn verið skráð á markað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×