Formaður Rósarinnar segist hafa verið blekktur 16. nóvember 2012 13:53 Birgir Dýrfjörð. Mynd / Samfylkingin í Reykjavík „
Við vorum blekkt," segir Birgir Dýrfjörð, formaður landsmálafélagsins Rósarinnar, sem er aðildarfélag að Samfylkingunni, en úrskurðarnefnd flokksins úrskurðaði að 350 nýir meðlimir Rósarinnar fá ekki að kjósa í prófkjöri flokksins í Reykjavík sem haldið verður nú um helgina. Prófkjörið hófst á miðnætti og stendur fram á laugardag. Birgir Dýrfjörð segir að hann hafi staðið í þeirri trú að nýskráðir félagar í Rósinni mættu taka þátt í prófkjöri flokksins, eftir að hann fékk fullvissu um það af hálfu kjörstjórnar, að eigin sögn. „Svo klukkan hálf-tíu í gærkvöldi fékk ég póst þar sem heimtað var staðfestingar," segir Birgir og bætir við að hann hafi fengið nokkrar klukkustundir til þess að senda þessar staðfestingar, sem hann sendi ekki. Var því tekin sú ákvörðun að fjarlægja þessa nýju 350 einstaklinga af kjörskrá flokksins í prófkjörinu, en meðlimir Rósarinnar geta aftur á móti kært þessa ákvörðun samhliða því sem þeir kjósa í prófkjörinu. „Þetta er samsæri á lúalegasta máta sem um getur, okkur voru gefnir fimm virkir tímar til þess að klára þetta," segir Birgir ósáttur. Samkvæmt heimildum Vísis voru það frambjóðendurnir Skúli Helgason og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem kærðu skráningu Rósarinnar. Úrskurður nefndarinnar er endanlegur. Aðspurður hvað sé til ráða, svarar Birgir því til að hann sé ekki búinn að skoða alla möguleika, „en það er til að mynda hægt að krefjast lögbanns á kosningarnar," segir hann án þess þó að slíkt sé í burðaliðunum. Formaður kjörstjórnar, Stefán Benediktsson, segir í samtali við Vísi að farið hafi verið fram á staðfestingar á nýskráningum innan ákveðins frests, þegar þær bárust ekki var þetta ákvörðunin. Hann áréttar að skráðir meðlimir Rósarinnar geti kært ákvörðunina samhliða því sem þeir kjósa í prófkjörinu.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira