Innlent

Íslenskar stúlkur plötuðu ferðamann úr fötunum

Á dögunum var tilkynnt um nakinn mann á hlaupum á grasblettinum við Stjórnarráðið samkvæmt frásögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og má finna á Facebook síðu embættisins.

Þar kemur fram að eftir að maðurinn hafði hlaupið einhverja hringi náðu lögreglumenn að hafa hendur í hári hans enda fátt annað að grípa í svo vel færi.

Þarna var á ferðinni ungur ferðamaður og var hann á sokkunum einum fata. Hann var mjög miður sín þegar komið var í lögreglubifreiðina og gaf þær skýringar að hann hefði hitt íslenskar stúlkur á bar í borginni.

Maðurinn sagði að stúlkurnar hefðu manað hann til að fara úr fötunum og hlaupa um á umræddu grasi, en þær staðhæft að slíkt væri algeng hefð á Íslandi og í einskærri hjálpsemi hafi hafi þær boðist til að halda á fötum hans á meðan hann þreytti hlaupið. Þær létu sig hins vegar hverfa í miðju hlaupinu svo ungi ferðamaðurinn var bæði kaldur og úrræðalaus á hlaupum í leit að fötunum.

Var honum komið á lögreglustöðina vafinn teppi en hann átti í erfiðleikum með að framvísa skilríkjum enda veskið í buxunum, sem voru í höndum stúlknanna.

Sagan endaði samt betur á horfðist í fyrstu því að er honum var skilað á hótel sitt, biðu fötin hans í móttökunni en stúlkurnar horfnar á braut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×