Enski boltinn

Evans búinn að framlengja við Man. Utd

Evans fagnar marki í vetur.
Evans fagnar marki í vetur.
Jonny Evans, varnarmaður Man. Utd, er búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið. Nýi samningurinn er til þriggja og hálfs árs.

Hinn 24 ára gamli Evans átti 18 mánuði eftir af gamla samningnum sínum.

"Jonny hefur unnið sig upp á toppinn hjá okkur og er mikilvægur hluti af þessu liði. Hann hefur þróast í að verða toppleikmaður og þess utan skorað mikilvæg mörk. Ég er himinlifandi með að hann verði áfram," sagði Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×