Sveitastjórinn með tárin í augunum Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. desember 2012 10:49
Eygló Kristjánsdóttir, sveitastjóri á Kirkjubæjarklaustri, er með tárin í augunum eftir að sundlauginni á Kirkjubæjarklaustri var lokað í morgun. Grunnskólabörn munu því ekki komast ekki í skólasund á næstunni. Ástæðan fyrir lokuninni er sú að sundlaugin er kynnt upp með orku frá sorpbrennslustöðinni. Þegar upp kom díoxinmengun í sorpbrennslustöð á Ísafirði breytti Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra reglugerð fyrir eldri sorpbrennslustöðvar. Eftir það hefur sorpbrennslustöðin á Kirkjubæjarklaustri ekki uppfyllt þær kröfur sem reglugerðin gerir. Sveitarfélagið hefur því verið svipt leyfi til að reka sorpbrennsluna. Eygló Kristjánsdóttir sveitastjóri fullyrðir að sorpvinnslustöðin mengi ekki of mikið heldur séu það tæknileg atriði varðandi nýju reglugerðina sem sorpvinnslustöðin uppfylli ekki. Kirkjubæjarklaustur, sem nýtur aðstoðar eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga vegna slæmrar fjárhagsstöðu, óskaði eftir því að fá leyfi til að starfrækja stöðina fram í mars 2015. Umhverfisstofnun hefur frest til 18. desember til að svara þeirri beiðni. Starfsleyfi sorpbrennslustöðvarinnar rann aftur á móti út í gær og úr því að svar var ekki komið frá Umhverfisstofnun var ákveðið að loka sundlauginni. Eygló sér ekki fram á að geta haldið úti starfsemi sundlaugarinnar við þessar aðstæður og málið muni hafa í för með sér röskun á skólastarfi. Grunnskólabörn komist ekki í sund á meðan málin standi svona. „Maður er bara með tárin í augunum," segir Eygló Kristjánsdóttir, sveitarstjóri á Kirkjubæjarklaustri, aðspurð hvort þetta sé svekkjandi.
Mest lesið Jarðskjálfti við Kleifarvatn Innlent Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Erlent Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Erlent Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Innlent Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Erlent Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Innlent Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Sjá meira