Einar Boom fær bætur 13. desember 2012 12:58 Einar Boom Marteinsson þegar hann var enn foringi Hells Angels.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið til þess að greiða Einari „Boom" Marteinssyni 150 þúsund krónur í miskabætur fyrir símahlerun í morgun. Einar var hleraður þegar hann var foringi vélhjólasamtakanna Fáfnir sem síðar urðu Hells Angels. Hlerunin fór fram á mánaðartímabili árið 2009. Símtæki Einars voru meðal annars hleruð þar sem hann tók á móti útlendum manni úr Hells Angels. Hann var aldrei handtekinn grunaður um glæpinn sem lögreglan rannsakaði. Að lokum var símahlerunum hætt, það er að segja áður en heimild til þess rann út, þar sem lögreglan mat sem svo að slík hlustun þjónaði engum tilgangi. Athygli vekur að dómari metur sem svo að það hafi verið skilyrði fyrir heimild til þess að hlera Einar, þar sem hann var þá leiðtogi samtaka sem eru skilgreind af lögreglu sem skipulögð glæpastarfsemi. Það þýðir þó ekki að hlerunin sé undanskilin lögum um miskabætur. Svo segir orðrétt í dóminum: „Stefnandi [Einar] var spurður um það við aðalmeðferð málsins hvernig honum hafi orðið við þegar hann komst að því að sími hans hafði verið hlustaður á árinu 2009. Hann svaraði því til að honum hefði liðið hræðilega, honum hafi fundist eins og sér hefði verið nauðgað. Þetta hefði verið hræðileg tilfinning. „Persónuleg símtöl og annað slíkt sem hann hafi verið að tala við konuna sína og aðra..." Málskostnaður fellur niður. Einar sat síðar í gæsluvarðhaldi í um hálft ár þegar hann var handtekinn í tengslum við árás í Hafnarfirði þar sem fjórir einstaklingar gengu hrottalega í skrokk á konu. Einar var sýknaður í því máli.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Sjá meira