Sakar ríkisstjórnina um svikin loforð Höskuldur Kári Schram skrifar 13. desember 2012 18:55
Forseti Alþýðusambandsins segir tilgangslaust eiga frekari viðræður við ríkisstjórnina í tengslum við endurskoðun kjarasamninga. Stjórnvöld hafi margbrotið gefin loforð og eina rétta í stöðunni sé að þreyja þorrann fram að næstu kosningum. Alþýðusambandið birti í dag heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu þar sem ríkisstjórnin er sökuð um að hafa svikið þau loforð sem gefin voru við gerð kjarasamninga í maí á síðasta ári. Meðal annars hafi ekki verið staðið við hækkun atvinnuleysisbóta, gengi krónunnar hafi ekki styrkst, verðbólgumarkmið hafi ekki náðst og ekki hafi verið staðið við aðgerðir í atvinnumálum. Formenn aðildarfélaga ASÍ funduðu um endurskoðun kjarasamninga á Grand Hóteli í dag en ef til uppsagnar kemur þarf að segja samningnum upp fyrir 21. janúar. Forseti ASÍ segir að forsendur samnings séu brostnar. Verðbólgan sé of há og gengið alltof veikt. „En að sama skapi eru forsendur okkar við stjórnvöld, bæði efnisleg loforð um einstakar ákvarðanir en líka samstarf um stefnumörkun hvað varðar gengi, efnahagsmál og atvinnumál, atvinnuuppbyggingu út í vindinum. Við vorum að fjalla um það hvernig við eigum að snúa okkur í þessu," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Og það var niðurstaða okkar formanna, samþykkja þá tillögu okkar í samninganefndinni að við munum ekki eiga frekari viðræður við stjórnvöld. Við teljum það tilgangslaust. Við ætlum ekki að fara í fimma sinn í slíka erindagjörð. Við verðum að bara að þreyja þorranna. Það eru kosningar í vor." Gylfi segir að margt hafi gengið vel í samstarfi við ríkisstjórnina. „En það er líka alveg ljóst að það er margt af því sem okkur var gefið fyrirheit um hluti sem ekki hefur tekist. Sumt er svo alvarlegt, eins og skattlagning lífeyrisréttinda eða sinnuleysi í atvinnumálum, það er ekki lengra haldið í því. Við sjáum engan tilgang í því í ljósi þeirrar umræðu sem er inni á alþingi að halda því áfram."
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira