Innlent

Ísland gerir átta nýja loftferðasamninga

Flugvélar.
Flugvélar.
Verulegur árangur náðist í opnun nýrra markaða fyrir íslenska flugrekendur á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga sem lauk í vikunni.

Ráðstefnan fór fram í Jeddah, Saudi-Arabíu, og hefur staðið frá því á laugardag samkvæmt upplýsingum frá Utanríkisráðuneytinu. Markmið hennar var að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð og framkvæmd tvíhliða loftferðasamninga.

Samninganefnd Íslands gerði átta nýja loftferðasamninga á þessari ráðstefnu. Nýju samningarnir eru við Brúnei, Búrkina Faso, Jemen, Nýja-Sjáland, Senegal, Seychelles eyjar, Sierra Leone og Úrúguay. Fjöldi samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki nálgast því að vera 70 talsins.

Jafnframt voru undirritaðar viljayfirlýsingar um gerð loftferðasamninga við sex önnur ríki: Bangladesh, Botswana, Fílabeinsströndina, Gíneu, Kambódíu og Nígeríu.

Auk þessa fundaði sendinefnd Íslands með fulltrúum fjölda annarra ríkja, þ. á m. með Ástralíu, Kanada, Kína, Malí og Sviss um framkvæmd gildandi samninga.

Stöðugt vaxandi umsvif íslenskra flugrekenda hafa kallað á aukna áherslu á gerð tvíhliða loftferðasamninga við sem flest ríki. Misjafnt er hversu víðtæk réttindi tekst að semja um í hverju tilviki en oftast er um að ræða gagnkvæmar heimildir til farþega- og farmflugs milli samningsríkja, stundum einnig til og frá þriðju ríkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×