Segir ríki, sveitarfélög og fyrirtæki hafa velt vandanum yfir á launafólk Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 17. desember 2012 18:58
Ríki, sveitarfélög og fyrirtæki hafa velt vanda sínum yfir á launafólk sem er ekki aflögufært. Þetta segir forseti Alþýðusambands Íslands sem vill að launaliður kjarasamninganna verði endurskoðaður. Formaður Samtaka atvinnulífsins segir ekkert þangað að sækja. Samninganefnd ASÍ og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hittust á sínum fyrsta fundi í dag vegna síðustu endurskoðunar núgildandi kjarasamninga. Báðir aðilar hafa til 21. janúar til segja samningunum upp. SA segja að samningunum verði ekki sagt upp að þeirra frumkvæði en ASÍ hefur enga ákvörðun tekið. „Það er alveg ljóst að við teljum að þurfi einhvern veginn að endurskoða þennan launalið það gefur augaleið," segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ. „Það er ekkert til okkar að sækja og við sjáum ekkert hvernig við ættum að geta það miðað við þær aðstæður sem að eru í dag." segir Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka Atvinnulífsins. Gylfi svarar þessu raunar þannig að það sé ekkert heldur að sækja til félaga ASÍ. „en samt hafa nú fyrirtækin í landinu verið að hækka verð á vöru og þjónstu þannig að einhvern veginn verðum við að ná saman um þetta. Það er ljóst að það er mjög þröng staða en hún er líka þröng hjá heimilinum. Okkur finnst einhvern veginn eins og þessar brostnu væntingar varðandi það sem við gætum hafa fengið hafi einhvern veginn leitt til þess að bæði ríki, sveitarfélög og fyrirtæki eru að velta þessum vanda yfir á okkur og við erum ekkert aflögufær. Þess vegna held ég að þessi samræða verði að fara fram um hvað er hægt að gera til þess að koma til móts við þetta," segir Gylfi að lokum.
Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira