Kærður fyrir hrottalegt ofbeldi gegn konu sama dag og hann fékk nálgunarbann 17. desember 2012 22:28
Maðurinn, sem er kærður fyrir að hafa misþyrmt átján ára stúlku með hrottafengnum hætti á gistiheimili á dögunum, fékk nálgunarbann um miðjan október vegna sífelldra ofsókna og ofbeldis sem hann á að hafa beitt fyrrverandi unnustu sína. Sama kvöld og hann fékk nálgunarbannið, misþyrmdi hann annarri konu hrottalega. Svo virðist sem maðurinn sé heltekin af fyrrverandi unnustu sinni, en hann varð næstum manni að bana árið 2003 þegar hann skallaði hann í andlitið, þannig tennur brotnuðu, og skar hann svo á háls. Aðeins heppni varð til þess að maðurinn lést ekki af sárum sínum, en alls réðist hann á þrjá menn vopnaður hnífi í umræddi árás. Í niðurstöðu dómsins var tilgangur hans með árásinni að skaða sem mest en hann hlaut sjö ára fangelsi fyrir árásina sem þótti ófyrirleitin. Ástæðan fyrir árásinni voru samskipti fyrrverandi unnustu mannsins við mennina. Í gæsluvarðhaldskröfu sem Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag, kemur fram að fyrrverandi unnusta hans hafi fengið nálgunarbann á hann vegna hrottafengins ofbeldis sem hann hefur ítrekað beitt hana. Þannig er hann grunaður um að hafa ráðist á fyrrverandi unnustu sína í janúar síðastliðnum. Þá sló hann hana í andlitið með krepptum hnefa. Hann á einnig að hafa slegið hana með olnboga, lamið höfði hennar utan í vegg og sparkað ítrekað í hana þar sem hún lá illa áttuð á gólfinu. Maðurinn, sem er fæddur árið 1979, var svo fjarlægður af heimili konunnar í febrúar á þessu ári en þá hafði hann skemmt húsgögn og fleira á heimilinu. Maðurinn er síðast grunaður um að hafa eyðilagt innanstokksmuni á heimili fyrrverandi unnustu sinnar í ágúst síðastliðnum, sama mánuði og hann á að hafa nauðgað konu með hrottafengnum hætti. Maðurinn var dæmdur í hálfs árs nálgunarbann gagnvart fyrrverandi unnustu sinni í október. Sama kvöld og hann fékk nálgunarbannið á hann að hafa misþyrmt annarri konu á heimili hennar. Lýsingin er hrottaleg, en maðurinn er meðal annars kærður fyrir að hafa slegið hana í jörðina og hoppað á maganum á henni. Ofbeldisbrot mannsins virðast raunar ítrekað beinast að konum, en hann hefur verið kærður fyrir að beita fjórar konur ofbeldi, og svo að nauðga annarri bæði í leggöng og endaþarm. Maðurinn gekk meðal annars svo hrottalega í skrokk á átján ára stúlkunni á gistiheimili á Snorrabraut fyrir skömmu að ekki reyndist unnt að taka röntgen-myndir af henni vegna bólgu. Í kröfu lögreglustjórans, sem fer fram á gæsluvarðhaldið, kemur fram að brot mannsins séu í eðli sínu svo svívirðileg að almannhagsmunir krefjist þess að hann sæti gæsluvarðhaldi. Það myndi valda mikilli hneykslun og særa réttarvitund almennings gengi hann frjáls ferða sinna.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira