Innlent

Fjölveiðiskipið Þórsnes II strandaði í Breiðafirði

Fjölveiðiskipið Þórsnes II tók niðri á grynningu í Norðurflóa innarlega í Breiðafirði um 7 sjómílum suð-vestur af Reykhólum upp úr kl. 6 í morgun. Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og upplýstu um aðstæður.

Í tilkynningu segir að veður var þokkalegt á staðnum og enginn leki virtist vera kominn að skipinu. Landhelgisgæslan kallaði út og setti harðbotna björgunarbáta Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Stykkishólmi og Grundarfirði ásamt björgunarskipi á Rifi og björgunarsveit á Reykhólum í viðbragðstöðu.

Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar var kölluð út og sett í viðbragðstöðu á flugvelli í Reykjavík. Grettir, skip Þörungavinnslunnar á Reykhólum bjó sig einnig til að fara að Þórsnesi II og vera til taks þegar félli meira að og von um að skipið losnaði af grynningunum.

Um kl. 07:44 tilkynnti skipstjóri Þórsness II að skipið hefði losnað að sjálfsdáðum af strandstað þegar flæddi að en háflóð verður um kl. 11:00 í dag. Skrokkur og skrúfubúnaður skipsins virtist í lagi og heldur skipið undir eigin vélarafli til Stykkishólms til frekari skoðunar.

Þórsnes II er 233 brúttótonn að stærð, 32 metra langt og í áhöfn eru 9 manns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×