Innlent

Börkur reifst við verjanda sinn

Börkur Birgisson kemur í dómsalinn á fyrsta degi réttarhaldanna.
Börkur Birgisson kemur í dómsalinn á fyrsta degi réttarhaldanna.
Ósætti kom upp á milli Barkar Birgissonar og Inga Freys Ágústssonar, verjanda hans, þegar hlé var gert á þinghaldi í stóru ofbeldismáli sem fram fer í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Þeir sem voru viðstaddir í dómhúsinu urðu vitni að rifrildi sem fram fór á milli þeirra í einu herbergjanna. Vegna takmörkunar á fréttaflutningi af málinu mun Vísir ekki greina frá ástæðum ósættis þeirra, að öðru leyti en því að það snerist um spurningar verjandans til eins vitnis í málinu.

Öðrum degi réttarhaldanna fer senn að ljúka, en gert er ráð fyrir að minnsta kosti eitt vitnanna gefi skýrslu á morgun. Þá munu sakborningarnir hugsanlega gefa skýrslu aftur á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×