Innlent

Burðardýr í 15 mánaða fangelsi fyrir kókaínsmygl

Fertugur Þjóðverji var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að flytja inn 1,2 kíló af kókaíni hingað til lands. Hann var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í lok ágúst síðastliðinn en fíkniefnin faldi hann í líkama sínum í 108 pakkningum.

Maðurinn játaði brot sitt fyrir dómi en dómari leit til þess að hann væri svokallað burðardýr. Samt sem áður, honum refsiþyngingar, lítur dómari svo á að um var að ræða mikið magn af hættulegum fíkniefnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×