Innlent

Rúta með fimm manns fór út af veginum á Gemlufallsheiði

Rétt í þessu voru björgunarsveitirnar Dýri frá Þingeyri og Sæbjörg, Flateyri kallaðar út vegna rútu sem fór útaf veginum á Gemlufallsheiði og situr föst á vegriði.

Í tilkynningu segirað fimm manns séu í bílnum en ekki er talið að þeir séu í neinni hættu.

Á Siglufirði vinnur björgunarsveitin Strákar að því að festa þakplötur sem voru að losna og Súlur - björgunarsveitin á Akureyri fór í gærkvöldi á Öxnadalsheiði og aðstoðaði ökumenn í ófærð fram á nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×