Innlent

Ökumaður fluttur á slysadeild - flughált á Suðurlandsveginum

Svínahraun.
Svínahraun.
Ökumaður var fluttu á slysadeild eftir að hafa velt jepplingi nærri afleggjaranum að Nesjavallavirkjun, nærri Hellisheiðinni um klukkan tíu í kvöld. Ökumaðurinn var einn í bílnum og var fluttur á slysadeild, meiðsl hans eru ekki talin mjög alvarleg.

Lögreglan á Selfossi segir ástæðu slyssins mjög líklega mikla hálku á svæðinu og varar ökumenn sérstaklega við en hálkan sést mjög illa og þarf að fara með gát á þessu svæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×