89 ár á milli og bæði með rauða nefið 23. nóvember 2012 09:45 Guðmundur er 90 ára og Auður Eldey 1 árs. Fréttablaðið/GVA
Guðmundur Ó. Guðmundsson, 90 ára, og Auður Eldey Flókadóttir, 1 árs, eru nýjustu heimsforeldrar Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi.Þau komu fram saman í gær til að vekja athygli á hinum árlega Degi rauða nefsins föstudaginn 7. desember næstkomandi en í dag hefst sala á rauðu nefjunum. Með sölu þeirra vill UNICEF gleðja landsmenn en vekja um leið athygli á þeirri neyð sem steðjar að milljónum barna um allan heim.Dagur rauða nefsins er árviss viðburður hjá UNICEF á Íslandi. Hann nær hámarki í metnaðarfullum söfnunar- og skemmtiþætti í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi. Þjóðþekktir grínistar, leikarar, skemmtikraftar, tónlistarmenn og fleira hæfileikafólk fara á kostum í skemmtiþættinum og allir gefa vinnu sína. Meginmarkmiðið þáttarins er að bjóða Íslendingum að gerast heimsforeldrar og styðja þar með í hverjum mánuði hjálparstarf UNICEF.Rauðu nefin í fyrra, þau Skotta, Skreppur og Skjóða, nutu gríðarlegra vinsælda hjá landsmönnum en nefin í ár koma í litlum glösum sem innihalda ráðlagðan dagskammt fyrir þau sem vilja bæta heiminn. Á glösunum stendur meðal annars: Notkun: Setjið rauða nefið upp og gleðjið samferðafólk með góðu sprelli. Aukaverkun: Með kaupum á þessu rauða nefi styrkir þú hjálparstarf UNICEF fyrir bágstödd börn.Nefin kosta 1.000 krónur og eru fáanleg í Bónus, Hagkaup, útibúum MP banka, Dominos og á kaffihúsum Te og kaffis. Nefin í ár koma í litlum glösum sem innihalda ráðlagðan dagskammt fyrir þau sem vilja bæta heiminn.
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira