Innlent

Miklir óvissuþættir fyrir hendi

MH og JHH skrifar
Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur og Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundi seðlabankans í morgun.
Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur og Már Guðmundsson seðlabankastjóri á fundi seðlabankans í morgun.
Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir að staða efnahagsmaála hér á landi sé í stórum dráttum sú sama og bankinn hafi spáð strax eftir hrunið fyrir rúmum fjórum árum. Verðbólgan sé ennþá há og miklir óvissuþættir séu enn fyrir hendi. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að hækka stýrivexti um 0,25 prósentustig og eru stýrivextir nú sex prósent. Verðbólga mældist í október síðastliðnum 4,2 prósent.

„Við erum í vexti, auðvitað vildum við að hann væri meiri en ef við setjum hann í samhengi við reynslu annarra landa á sambærilegri kreppu og við fóum í gegnum þá held ég að þetta sé þetta ekkert úr takti við það sem við máttum búast við," segir Þórarinn.

Hann segir þó að matið fyrir árið í ár sé heldur veikara en reiknað var með. Vísbendingar á vinnumarkaði séu eins og hann sé að veikjast, en það sé tímabundið. „Þannig að ef við horfum á næsta ár, þá er heldur meiri hagvöxtur og yfir tímabilið í heild þá er þetta bara svipað og við höfum verið að reikna með," segir hann.

Stærstu óvissuþættirnir séu hins vegar aðstæður í ríkjum í kringum okkur. „Þannig að þetta er okkar grunnspá og aðstæður gætu breyst bæði til betri og verri vegar," segir Þórarinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×