Innlent

Ung stúlka datt og rotaðist

JHH skrifar
Stúlkan var flutt á slysadeild með sjúkrabíl.
Stúlkan var flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Mynd/ Óskar.
Ung stúlka datt af reiðhjóli í Keflavík í fyrradag og rotaðist. Töluverð hálka var á götum bæjarins þegar óhappið varð. Lögregla og sjúkralið á Suðurnesjum voru kvödd á slysstað. Stúlkan var ekki með öryggishjálm þegar hún datt, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar var ákveðið að flytja hana á Landspítalann vegna höfuðáverka sem hún hafði hlotið við fallið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×