Innlent

Starfsfólk Iceland Express efnir til markaðar vegna ferðaloka

Flugfreyja að störfum hjá Iceland Express þegar fyrirtækið var enn að störfum.
Flugfreyja að störfum hjá Iceland Express þegar fyrirtækið var enn að störfum.
Starfsfólk Iceland Express, sem missti nýverið vinnuna eftir að félagið var lagt niður og WOW air keypti flugrekstrarhluta fyrirtækisins, hyggst halda „Bjútý frí" markað.

Markaðurinn opnar í dag í húsnæði Iceland Express sem verður raunar kallað Iceland Expressó á morgun samkvæmt tilkynningu frá starfsfólkinu sem deyr ekki ráðalaust þrátt fyrir uppsagnir og hræringar flugfélaga hér á landi.

Í tilkynningu frá starfsfólki segir meðal annars að þar verði hægt að fá Barnaföt á stráka og stelpur Carters, OshKosh, GAP, H&M, og fleira.

Einnig verður hægt að fá föt í frægum merkjum fyrir fullorðna, meðal ananrs Levi´s, Abercrombie, Hollister og fleira.

Meðal þeirra sem taka á móti gestum verða flugfreyjurnar Edda Björgvins, Heiðar Jónsson og Helga Braga.

Markaðurinn hefst klukkan 13:00 í dag og stendur í þrjá daga. Höfuðstöðvar Iceland Express verður í Ármúla 7.

Hér fyrir neðan er tilkynningin í heild sinni:

Fyrrverandi starfsfólk Iceland Express deyr ekki ráðalaust og býður ykkur um borð í Ármúla 7 dagana 15. 16. og 17.nóv í kaffisopa, knús, kodda og teppi og alls konar djútý frí á frábæru verði. Á markaðinum kennir margra grasa, t.d. notaður fullorðins- og barnafatnaður sem oftar en ekki hefur verið keyptur á erlendri grundu, undurfagrir aðventukransar, ýmiskonar handverk, glis, glimmer og tóm hamingja. Kaffihúsið Iceland Expressó með rjúkandi kaffi á könnunni á staðnum með ýmsu góðgæti og vægu verði. Komið og fáið upplifun og gerið frábær kaup. Opið alla dagana frá kl 13-18. Takk fyrir að velja Iceland Expressó

Bjútý frí markaðurinn á Iceland Expressó opnar á morgun og þar verður fjör of flottir munir. Barnaföt á stráka og stelpur Carters, OshKosh, GAP, H&M, og fleira. Splúkuný Graco barnakerrra í brúnum og bleikum tónum, Mongoose hjól, línuskautar og fleira og fleira skemmtilegt á frábæru verði. Einnig fullorðinsföt Levis, Abercrombie, Hollister og fleiri flott merki. Aðventukransar hannaðir af Esther fluffu og blómaskreyti, Naglalökkun á staðnum, lökkin endast í 3-4 vikur, ledurarmbönd hönnuð af okkur, bakkelsi og brakandi sörur. Bjóvetlingar og íþróttaföt.

Á markaðnum verður bæði nýtt og notað og hægt að gera frábær kaup.

Allir mæta með góða skapið, þeirra á meðal flugliðarnir fyrrverandi Edda Björgvins, Heiðar Jónsson og Helga Braga. Bjóðum ykkur velkomin um borð !

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk á staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×