Innlent

Jólabjórinn í verslanir í dag

Í ár kemur 21 tegund af jólabjór á markað.
Í ár kemur 21 tegund af jólabjór á markað.
Sala jólabjórs hófst í Vínbúðunum í dag, fimmtudag. Jólabjórinn vekur alltaf mikla athygli, en í ár er von á 21 tegund í sölu (auk annarrar jólavöru) samkvæmt frétt sem finna má á vefsíðu Vínbúðarinnar.

Þar segir að mikið kapp hafi verið lagt á að dreifa jólabjórnum í Vínbúðir þannig að sem flestar tegundir séu fáanlegar við upphaf sölutímabilsins.

Dreifingin ræðst hins vegar af því magni sem fáanlegt er frá framleiðanda eða innflytjanda. Flestar tegundir eru nú þegar komnar í dreifingu en ef vara er ekki fáanleg þá er von á henni á næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×