Innlent

Búið að fjarlægja styttuna af Hermes

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Styttan var fjarlægð eftir hádegi.
Styttan var fjarlægð eftir hádegi. Mynd/ Pjetur.
Búið er að fjarlægja bronsstyttuna af Hermes frá Bríetartúni, sem áður hét Skúlatún. Eins og fram kom fréttum í morgun er ástæða þess að styttan var fjarlægð sú að gulri málningu var hellt yfir verkið og er erfitt að hreinsa hana af án þess að skemma málminn. Í tilkynningu segir að nauðsynlegt sé því að fjarlægja styttuna og alls óvíst hvort og hvenær hægt verður að setja hana upp að nýju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×