Innlent

Gámum stolið - leitað að vitnum

Í nótt var þremur 40 feta gámum og einum kaffiskúr stolið af vinnusvæði Nesbyggðar á Stapa við Reykjanesbraut. Tveir gámanna eru hvítir að lit og sá þriðji brúnn og hvítur.

Vinnuskúrinn er 20 m2 að stærð, með flötu þaki og bárujárnsklæddur, með liggjandi klæðningu.

Hver sá sem varð var við gámaflutninga á Reykjanesbraut umrædda nótt eða veit um gáma á nýjum stað og lýsingin passar við beðnir um að hafa samband við lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×