Innlent

Hættustigi lýst yfir á Ísafirði

Loftmynd af Ísafirði 24. mars 2011.
Loftmynd af Ísafirði 24. mars 2011.
Hættustigi hefur verið lýst yfir á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu þarf að rýma reit 9, sem hluti af Seljalandshlíð.

Á þessum reit er engin föst búseta en iðnaðarhúsnæði er á svæðinu.

Þá er enn í gildi óvissustig fyrir aðra hluta af norðanverðum Vestfjörðum og fyrir mið-Norðurland, sem nær yfir umdæmi lögreglustjórans á Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×