Krafðist þess að kjörfundur yrði framlengdur til miðnættis Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. nóvember 2012 21:30
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður hefur farið þess á leit að ákvörðun kjörstjórnar Samfylkingarinnar í Reykjavík um að synja sjötíu manns aðgangi að kjörskrá verði fellt úr gildi. Kjörfundur verði svo framlengdur til miðnættis. Sigurður sendi bréf með þessari kröfu til úrskurðarnefndar um kærumál í dag, en hún starfar samkvæmt reglum Samfylkingarinnar. Forsaga málsins er sú að kjörstjórn hafnaði því að 350 manns á vegum Rósarinnar, yrðu á kjörskrá. Sigurður segir að samkvæmt reglum Samfylkingarinnar geti þeir kært sig aftur inn á kjörskrá ef þeir eru teknir af henni, eins og gerðist í þessu tilfelli. Umræddir 70 aðilar hafi allir gert það. Þeirri kröfu var hafnað í dag og barst Sigurði niðurstaðan rétt fyrir klukkan sex. Hann sendi því erindi til úrskurðarnefndarinnar. „Hér með fer ég þess á leit fyrir hönd Rósarinnar og þeirra félagsmanna í félaginu sem lögðu fram kjörskrárkæru til kjörstjórnar Samfylkingarinnar sbr. m.a. tölvupósta og bréf að ákvörðun kjörstjórnar um að taka þessa aðila ekki upp á kjörskrá verði felld úr gildi og lagt verði fyrir kjörstjórn að framlengja kjörfund til miðnættis 17. nóvember 2012," segir í bréfinu sem sent var úrskurðarnefndinni. Þess má geta að kjörfundi er lokið og verið er að telja atkvæði.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Fleiri fréttir Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Sjá meira