Endurgreiddi 100 þúsund króna brúðkaupsgjöf til Vilhjálms 18. nóvember 2012 11:11
Sigurður Helgi Guðmundsson fyrrverandi framkvæmdastjóri hjúkrunarfélagsins Eirar, hefur endurgreitt Eir 100 þúsund krónur sem Eir gaf Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Eirar, í brúðkaupsgjöf. Eins og áður hafði komið fram hefur Sigurður Helgi einnig endurgreitt Eir gjafabréf Icelandair sem hann gaf Jóhannesi Rúnari Jóhannessyni, tengdasyni sínum, sem þakklætisvott fyrir vinnu sem hann vann fyrir Eir. „Jóhannes Rúnar leit á vinnuframlag sitt sem vinargreiða við tengdaföður og vildi því ekki fara fram á greiðslu fyrir það. Ég ákvað hins vegar að umbuna honum með gjafabréfinu, eins og fram hefur komið. Sú ákvörðun var og er á mína ábyrgð. Jóhannes Rúnar hefur að ósekju verið dreginn inn í opinbera umræðu. Hann hafði aldrei ástæðu til annars en að ætla að gjafabréfið væri frá mér og greitt af mér en ekki með fjármunum úr þróunarsjóði Eirar," segir í bréfi sem Sigurður Helgi sendi fjölmiðlum í morgun. Sigurður Helgi segir að hinn hluti greiðslunnar, 100.000 kr., varði gjöf sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson fór fram á að fá frá Eir í tilefni af brúðkaupi sínu. „Sama hlýtur hins vegar að gilda um mína ábyrgð gagnvart þeirri ákvörðun og gjafabréfinu. Því endurgreiði ég brúðkaupsgjöfina líka hér og nú," segir hann. Sigurður Helgi segir að Ríkisendurskoðun hafi ekki haft samband við sig til að kalla eftir skýringum og sjónarmiðum eða virða yfirleitt á nokkurn hátt andmælarétt gagnvart sér. „Mér þykja þau vinnubrögð sérkennileg," segir hann.
Mest lesið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Innlent Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Innlent Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? Innlent Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Erlent Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Erlent Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Innlent 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Innlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Segir Trump ekki reiðan Íslandi Erlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Fleiri fréttir Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Spyr hvort ekki sé tími á að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima Hvort myndu þau hringja fyrst til baka í Pétur eða Hildi? 28 prósent Selfyssingar: „Eitthvað í mjólkinni eða smjörinu“ Erlendir aðilar reyni að hafa vit fyrir Íslendingum Óttast að útlendingafrumvarpið þjóni ekki tilgangi sínum Sigurvíma, hópuppsögn og auðar brekkur Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Sjá meira