Innlent

Samningurinn við Hong Kong tekur gildi á mánudag

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson
Fríverslunarsamningur milli EFTA-ríkjanna og Hong Kong, sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifaði undir fyrir Íslands hönd síðastliðið sumar, tekur gildi á mánudag.

Þessu greindi talsmaður yfirvalda í Hong Kong frá í gær. Undirritun á samningnum fór fram á ráðherrafundi EFTA í Liechtenstein þann 21.júní í fyrra. en þetta er fyrsti fríverslunarsamningur sem Hong Kong gerir við Evópuríki, og tekur hann bæði til vöru- og þjónustuviðskipta og tryggir tollfrelsi íslenskra fiskafurða og iðnaðarvarnings.

Í grein Össurar Skarphéðinssonar Utanríkisráðherra, sem birtist í Fréttablaðinu rétt eftir undirritun segir að samningurinn muni skapa öruggara og auðveldara umhverfi fyrir Íslendinga til almennra viðskipta og fjárfestinga í Hong Kong en í fyrra voru íslensk fyrirtæki með ríflega 800 manns þar í vinnu.

Hong Kong er vaxandi miðstöð viðskipta inn á hin öflugu og rísandi markaðssvæði í Suðaustur-Asíu að sögn Össurar og hefur Hong Kong, sem er hluti Kínverska Alþýðulýðveldisins, sett í sérstakan forgang aukin viðskiptatengsl við meginland Kína.

Tækifærin sem nýi fríverslunarsamningurinn opnar liggja því ekki aðeins í aðgangi að mörkuðum Hong Kong heldur líka í tækifærunum sem hann skapar til að koma íslenskri framleiðslu á framfæri gegnum frumkvöðla í Hong Kong á hinn risastóra markað á meginlandi Kína, og Suðaustur-Asíu, segir Össur jafnframt.

Samningurinn við EFTA löndin Íslands Lichtenstein og Sviss tekur gildi á mánudag en við Noreg tveimur mánuðum síðar, eða fyrsta nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×