Unglingar eyða meiri tíma með foreldrum sínum BBI skrifar 3. september 2012 18:35 Móðir og dóttir taka mynd af sjálfum sér himinlifandi í framan. Þeim að baki er himinbláminn. Mynd/Getty
Fjöldi þeirra unglinga sem eyða miklum tíma með foreldrum sínum utan skóla hefur aukist töluvert síðustu fimmtán ár. Þetta kemur fram í nýju riti sem unnið var fyrir menntamálaráðuneytið og nefnist Ungt fólk 2012. Árið 1997 eyddi rétt um fjórðungur barna í 9. og 10. bekk miklum tíma með foreldrum sínum eftir skóla á virkum dögum. Það hlutfall hefur aukist umtalsvert síðan þá og nú eyða 49% stúlkna miklum tíma með foreldrum sínum en 44% stráka. Hlutfallið er enn hærra þegar samvistir við foreldra um helgar eru skoðaðar og hefur einnig aukist. Á sama tíma lækkar hlutfall barna í 9. og 10. bekk sem eru mikið úti eftir klukkan 10 á kvöldin. Nú er það hlutfall rétt um og yfir 25% en var fyrir tólf árum í kringum 50%. Þetta virðist jafnvel haldast í hendur við hlutfall barna á þessu reki sem fer vikulega í partí, en það hlutfall hefur lækkað mjög síðustu 12 ár. Nú fara aðeins 2% barna í partí vikulega eða oftar en árið 1997 gerðu það 11%. Í ritinu segir að rannsóknir síðustu áratuga bendi til þess að tengsl barna við foreldra sína skipti miklu máli fyrir þroska þeirra. Þá kemur fram að þau börn sem verja miklum tíma með foreldrum sínum er ólíklegri en önnur til að leiðast út í notkun vímuefna. Þá gengur þeim yfirleitt betur í skóla og eignast vini af svipuðu reki. Æskulýðsrannsóknirnar undir formerkjum „Ungt fólk“ hafa verið gerðar síðan árið 1992 þegar Rannsóknarstofnun uppeldis- og menntamála að frumkvæði menntamálaráðuneytisins, hóf að framkvæma kannananir meðal nemenda í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum landsins.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Innlent Fleiri fréttir Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Sjá meira