Innlent

Hleypt af byssu í Garðabæ

Sérsveit lögreglustjóra. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Sérsveit lögreglustjóra. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Karlmaður var handtekinn í Garðabæ á fimmta tímanum í dag. Hafði hann hleypt af skotvopni í íbúðarhúsi við Sunnuflöt. Maðurinn er nú í haldi lögreglu en um þrjátíu lögreglumenn tóku þátt í aðgerðinni. Loka þurfti hverfinu í stuttan tíma á meðan maðurinn var handsamaður. Mikill viðbúnaður var vegna málsins og var sérsveit lögreglunnar kölluð út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×