Innlent

Hvetur strandveiðimenn til samstöðu

BBI skrifar
Margir strandveiðimenn eru ósáttir við uppskiptingu strandveiðisvæða, en landinu er skipt í fjögur svæði og skiptingin hefur verið óbreytt síðan veiðarnar voru aftur leyfðar. Formaður smábátafélags á norðanverðum Vestfjörðum hvetur strandveiðimenn til að sýna samstöðu, fjölmenna á aðalfund Landsambands smábátaeigenda til að láta í sér heyra.

Sigurður Kjartan Hálfdánarson, formaður smábátafélagsins Eldingar, er á þeirri skoðun að strandveiðikerfinu þurfi að breyta. „Það þarf hinsvegar að vera breið samstaða og við þurfum að geta rætt málin og látið rödd okkar heyrast," segir hann í samtali við Bæjarins Besta á Ísafirði.

Kvótinn klárast mjög mishratt á svæðunum, t.d. er hann búinn eftir fáeina daga á svæði A. Kostirnir við það svæði er að þar er langbesta veiðin. Ókostirnir eru hve margir eru á svæðinu, að sögn Sigurðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×